Heiðdís, komin í Breiðholt af öllum stöðum!!
   

<< May 2012 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:


rss feed

Tuesday, April 03, 2007
úps

úps...sjáiði hvað ég gerði...  www.heiddis.blog.is

Posted at 11:02 pm by heiddisr
Make a comment  

Thursday, March 22, 2007
13 dagar ...

Offf....stundum er vinnan mín svo erfið. Dagurinn í dag var erfiður. Hann byrjaði til dæmis ekkert sérstaklega vel. Var slegin 3x í andlitið. Hefði getað haldið höggunum í einu ef ég hefði beðiði um hjálp strax. En ég varð svo fúl að ég ákvað að gera það sem ég var að gera ein, og fékk þá bara tvö högg í viðbót á nefið. Eins gott að gleraugun eru með svona dempara...annars væru þau orðin svo víð á mér að ég gæti örugglega ekki haft þau á mér.

Annars held ég að ég þurfi að fara að leita mér að þolinmæðinni minni aftur. Þegar ég byrjaði hérna þá hafði ég að mér fannst endalausa þolinmæði fyrir hinum ýmsu sérþörfum þjónustunotenda hérna inni. En hún hefur eitthvað minnkað.Ég gat talað sumt fólk hérna endalaust til ef það var æst eða vildi ekki gera eins og það átti að gera. Núna langar mig (ath langar, geri ekki endilega) helst til að segja æstu fólki að þegja og nenni ekki að díla við þá sem gera ekki eins og ég segi. Veit ekki hvort að þetta sé það sem kallast kulnun í starfi eða hvað. Gerðist reyndar líka í Nóatúni og þessi fílingur leið hjá. Vona að það geri það núna líka og það fljótlega. Er samt farin að telja niður í páskafrí !!! 13 dagar...


Posted at 03:49 pm by heiddisr
Comments (1)  

Monday, March 19, 2007
Ólétta !!

Ég var í Kringlunni í dag og mig langaði svo til að vera ólétt. Þá gæti ég keypt mér stærri buxur og verið sátt við það Shocked

Posted at 08:00 pm by heiddisr
Comments (3)  

Thursday, March 15, 2007
mæ læf

Ég sá under cover löggubíl um helgina. Hélt að þeir væru ekki til í alvörunni. Sá svoleiðis bíl taka annan um helgina. Mér fannst það merkilegt.

Ég fór á tvær árshátíðar um síðustu helgi. Vann síma á árshátíðinni í vinnunni minni. Fyrstu tvær mínóturnar fannst mér merkilegra að fara upp á svið til Björgvins Franz. Ég þurfti náttúrulega að kyssa hann á kinnina þó að enginn annar vinningshafi hafi gert það. They didin´t know what they were missing!!  Þannig að núna á ég voða fancy pancy sony ericsson samloku myndavélasíma. Mér finnst hann vera voða töff. Minns vera voða djolly og montin þar sem ÉG VINN ALDREI NEITT. Gaman gaman.

Kisinn minn er svo mikill kjáni. Mér sýnist hann ekki drekka neitt vatn úr skálinni sinni. Hann drekkur hins vegar mjólk úr skál við hliðina (en ég ætla að taka mjólkina frá honum um helgina...hann er orðinn svo stór :) Hins vegar drekkur hann oftast vatn úr krananum ef ég er að stússast á baðherberginu og hann drekkur úr vatnsglasinu mínu sem er á borðinu. Núna kem ég yfirleitt með tvö glös á borðið, eitt fyrir mig og eitt fyrir hann. Og það er ekki hægt að segja við mig að hann vilji ekki staðið vatn þar sem hann drekkur frekar tveggja daga vatn úr glasi á borðinu heldur en nýtt vatn úr skál á gólfinu. Krútt. Hann fór samt illa með djúsið mitt sem ég var með á borðinu í vikunni þar sem hann smakkaði á því, leist ekki á það og hnerraði í glasið !! Ég náði í nýtt.

Fór á kisusýningu um helgina. Ég varð spurð hvort ég væri að verða svona crazy kisukona. Nei sagði ég, er bara að skoða svoleiðis fólk...Það var ágætt. Fullt af fallegum kisum. Gaman að þessu. Keypti kisumat á afslætti og einhver nammistykki sem gerir kisukúkinn lyktarminni. Merkilegt fyrirbæri og þvílík snilld :þ

var að hugsa um að skrifa eitthvað gáfulegt um þjóðmálin en ég nenni því ekki og ég kann það ekki !!


Posted at 09:31 pm by heiddisr
Make a comment  

Wednesday, March 07, 2007
Lasna bloggið

Ég sit heima hjá mér í sófanum mínum...lasin. Ég er með svo ógeðslega hálsbólgu að það er hreinlega bara viðbjóður. Ágætis lýsing sem ég heyrði í vikunni var að þetta væri svona eins og að vera með rakvélablöð í hálsinum. Get alveg trúað að þetta sé eitthvað svipað. Í gær var ég svo með beinverki og hausverk líka. Var nú samt í vinnunni en beið eiginlega bara eftir hitanum. Hann kom svo á milli tvö og þrjú. Þá fór ég heim. Líður reyndar ágætlega núna (fyrir utan hálsbólguna). Er ekki með hita en er voða slöpp og aumingjaleg. Vona að þetta minnki fyrir helgina, ég er nefninlega búin að borga fyrir árshátíð sem verður á laugardaginn!! Kisla litla finns held ég ekkert leiðinlegt að hafa mig heima, hann kúrir allavega nálægt mér þegar hann getur, hann getur verið svo mikill snúður.

Ég var annars að spá hvort ég ætti að fara að skipta um blog. Komast í moggabloggs klíkuna til að geta fengið mynd af mér á síður hjá öðrum og svoleiðis töffaraskapur. Mér finnst það bara eitthvað svo leiðinlegt. Er búin að vera með þessa síðu síðan jah, 2003 eða 2004. Mér finnst það bara hellingur miðað við skilnaðartíðni fólks og bloggsíðna nú á dögum. Reyndi í veikindum mínum í dag að flikka aðeins uppá þessa síðu. Aðeins að breyta útlitinu og uppfæra blogghópinn þar sem ég hef verið mjög löt við það síðasta árið. Sjáum til hvernig ég nenni þessu. Hvort ég þurfi eitthvað nýrra en þetta eða hvað. Kannski lúðast ég bara eins og sumir sem fá sér moggablogg til að fá mynd af sér á aðrar síður en eru bara að benda á hinar bloggsíðurnar sínar Tongue  En hrós dagsins fær Friðrik Jensen fyrir að setja inn linka fyrir okkur hin sem erum ekki með moggablogg. Þeir sem gera það ekki eru svolitlir lúðar !!! (hhmmm, ætli maður fái comment fyrir að kalla fólk lúða ??)

 


Posted at 01:05 pm by heiddisr
Comments (1)  

Wednesday, February 28, 2007
Eitt og annað

Ég er að horfa á Britains next top model og ég get svo svarið það þetta er meiri vitleysa en americas next top model. Mér sýnist á öllu að bresku stelpurnar séu meira dramadrottningar en þær amerísku (ef það er hægt!). Þessi þáttur lítur allavega ekki út fyrir að vera jafn glam og sá ameríski, sem mér finnst vera svolíti synd. Ég horfi nefninlega á raunveruleikaþætti til þess að komast úr raunveruleikanum og í óraunverulegan raunveruleika...eða svoleiðis sko. Myndirnar ekki jafn flottar og ég sakna dómaranna í ameríkunni !!

Allavega, það er sko meira en nóg að gera í vinnunni. 6 af 12 starfsmönnum voru veik í síðustu viku. Þar af allir 6 sömu tvo dagana. Ekki alveg nógu gott. Ennþá svolítil veikindi í gangi, ekki alveg jafn mikil og í síðustu viku en þó nokkur. Nóg að gera hjá mér þar sem forstöðukonan er veik þessa vikuna og starfsdagur á föstudaginn. Óboy...

Bíllinn minn var í viðgerð í dag. Mér fannst mjög ósanngjarnt að hann væri farinn að hiksta þar sem hann er bara 2004 árgerð. En sem betur fer virðist það hafa virkað að skipta bara um einhver kerti og bensín síu og hann er orðinn mun mýkri og þægilegri að keyra. Hafði ekki tekið eftir því hvað hann var orðinn "harður" að keyra. Bíllinn minn hefur samt alltaf verið þannig að stefnuljósið slær ekki af þegar maður er búinn að beygja. Ég hélt að hann hefði bara komið svona en þá kemur í ljós að það er eitthvað brotið inni í stýrinu og það kostar svolítið að gera við hann. Þannig að pabbi ætlar að hringja í toyota og segja "halló, dóttir mín keypti bíl hjá ykkur fyrir 15 mánuðum síðan og hún hefur verið of löt til að láta athuga stefnuljósið sem var bilað þegar hún keypti bílinn". Gaman að fá að vita hvað þeir segja við þessu :þ En Stefán Bogi var að fá sér nýjan bíl. Rosa flottur skoda superb. Ætli hann verði ekki kallaður ráðherrabíllinn í daglegu tali !!

Kústur hefur það rosa gott hérna hjá okkur. Hann getur reyndar gert mig alveg vitlausa þegar hann er í því stuðinu. Reynir að naga tærnar á manni, leikur sér að höndunum á manni (klórar og glefsar), hleypur um allt hús, upp og yfir sófann og mannfólkið ef það er fyrir og þarf að skoða og helst naga allt sem hann finnur. En þess á milli er hann ferlega sætur, leikur sér með dótið sitt og kúrir hjá manni. Hann róast svo væntanlega (vonandi) með aldrinum :)

Ótrúlega fyndið hvað bloggmenningin hefur breyst á 2-3 árum. Þegar allir voru að byrja að blogga þá var kommentað hægri vinstri. Núna er þetta ekki lengur nýtt og skemmitlegt, allir komnir með blogg og alltaf einhver nýbúinn að blogga. Maður nennir einhvernvegin ekki að vera alltaf að kommenta. Samt vill maður sjálfur fá komment hjá hinum svo maður hafi smá hugmynd um hverjir eru að skoða síðuna manns. Mér finnst þetta fyndið en get samt ekki skammast undan kommentaleysi þar sem ég sjálf er ekkert dugleg að kommenta hjá öðrum :)

Ég og Stefán Bogi vorum rosalega hipp og kúl síðasta föstudag (fannst mér allavega). Við fórum út að borða á Thorvaldsen bar og fengum okkur svo eftirrétt á cafe parís. Þá átti kvöldið að vera búið og við vorum komin með vídjóspólu þegar vinkona hans Stefáns hringdi og spurði okkur hvort við vildum kíkja aðeins út. Þannig að við gerðum okkur sæt og kíktum aðeins á Salt, barinn á 1919 hótelinu. Sátum þar í tvo tíma og drukkum kokteila. Rosa flott :)

Hey við vorum að kaupa okkur ferð til Krítar í ágúst, vúhú. Er farin að hlakka til en nenni eiginlega ekki að hlakka til strax þar sem ferðin er ekki fyrr en eftir hálft ár ! Við förum síðustu vikuna í ágúst sem gerði ferðina 15 þúsund krónum ódýrari á mannin heldur en ef við förum tveimur vikum fyrr. Enginn smá munur! En við ætlum að vera á sama hóteli og ég var á fyrir fimm árum. OOhhh ég hlakka til að komast út í sólina :) vona svo að þetta verði sólríkt og skemmtilegt sumar. Allt er nú skátta en síðast sumar !

Vá held að ég sé búin að blogga nóg í bili. Until we meat again :)


Posted at 09:42 pm by heiddisr
Comments (2)  

Friday, February 09, 2007
Kústskaft!

Núna ætla ég að gera eins og kærastinn minn sem blogga alltaf í vinnuni !! Það er nefninlega föstudagur og ég er hætt að vinna í huganum þó að klukkan sé ekki orðin fjögur. Ég hélt að ég myndi blogga mikið fyrr til að segja frá kisanum mínum en ég hef bara ekkert nennt því undanfarið. Það er nú svona allt og ekkert búið að vera að gerast hjá mér.

Fyrst ber auðvitað að nefna kisustrákinn Kúst sem kom til okkar fyrir viku síðan. Hann vældi og vældi í bílnum á leiðinni heim en hefur eiginlega ekkert vælt síðan. Var alveg viss um að ég myndi ekkert geta sofið fyrir væli fyrstu 2-3 næturnar en nei nei. Minn sefur bara sáttur á teppinu sínu (með mömmu lykt í) í stofunni en við í herberginu. Fyrstu nóttina var opin hurðin til að ég myndi nú örugglega heyra í honum. Allar nætur síðan hefur hurðin verið lokuð. Það er einfaldlega af því að honum finnst fátt skemmtilegra en að láta eins og skopparakringla í rúmminu mínu. Það er heldur ekkert gaman að vera í rúmminu nema einhver annar liggi þar undir sæng og svo stekkur hann á allt sem hreyfinst og allt sem hreyfist ekki !! Fyrstu dagana vildi hann heldur ekkert vera að knúsast en núna kemur hann oft og leggst uppvið mann eða í fangið á manni. Ferlegt krútt. Hann tók svo nafnið sitt mjög alvarlega fyrsta daginn og sópaði rykinu undan sófanum mínum. Ég ryksugaði daginn eftir.  En allavega...hann virðist vera voða sáttur við lífið og mér finnst gaman að hafa hann :)                   p.s.er búin að setja myndir af honum á myndasíðuna sem ég mundi allt í einu eftir að ég ætti !!

En að öðru. Það var nóahittingur síðasta sunnudag. Voða gaman að hitta þetta fólk svona reglulega og blaðra saman og borða eitthvað djúsí. Svo kom Elín í heimsókn til mín á mánudaginn. Greinilegt að það er allt of langt síðan við höfum sést...Lárus bara farinn að tala og skríða og hef aldrei séð það gerast !! Lélegt af minns.  Við fórum að borða á Vegamót. Voða var það gaman. Mér fannst ég vera svo mikil gella að fara svona tvær vinkonurnar að borða góðan mat á Vegamótum. Veit ekki af hverju mér fannst það svona merkilegt....örugglega fólk sem gerir þetta oft í mánuði....en ekki ég!

Er skottið á ketti sem heitir Kústur kústskaft ?? (afi minn að spá! Hæ afi !! Big Smile)

Púff ég er orðin þreytt í úlnliðunum. Hætt í bili. Verð bara að blogga oftar svo ég þurfi ekki að blogga svona mikið í einu Shades


Posted at 02:55 pm by heiddisr
Make a comment  

Thursday, February 01, 2007
Vika dauðans (þ.e.mauranna)

Ég er svo þreyttur! Ég fer í vinnuna á morgun klukkan átta og ég verð búin að vinna klukkan tíu. Ég á inni frí sem ég ætla að taka á morgun. Og hvað ég þarf á því að halda. Er svo þreytt eftir vikuna að það er ekki fyndið. Þetta kláðamauravesen í vinnunni er búið að taka sinn toll. Múgæsingur og paranoia á hæsta stigi. En það er búið núna...finally. En eftir stend ég dauðþreytt. Var fyrir löngu búin að plana rólega helgi þar sem Kústur kemur á morgun (jey) en það er að verða eitthvað lítill tími eftir fyrir hann greyið.

Helgin mín (sem átti að vera róleg) er ca.svona: Ná í kisu í hádeginu á föstudegi. Þorrablót hjá tengdófjölskyldu milli sex og sjö (og frameftirSmile). KSF fundur og hugsanlegt vinnupartý á laugardagskvöld. Hugsanlegur Nóatúns hittingur sunnudagskvöld. Hitta Elínu og mánudag eftir vinnu. Hugsanlegur Serafa hittingur á miðvikudaginn...nóg að gera um helgina og í vikunni :) En þetta er nú allt skemmtilegt þannig að ég hef nú ekki miklar áhyggjur.

Ætla ekki að tala um leikinn við dani á þriðjudaginn. Þetta var eins sárt og það hefði getað verið sætt. Strákarnir "okkar" eru samt bestir og mér finnst þeir æði. Líka Logi þó hann hafi kastað boltanum til dana og Alexander þó hann hafi skotið í stöngina. Þeir eru bestir.

Blogga næst þegar Kústur er kominn og mér finnst hann svo sætur að ég verð að segja frá því og helst sýna myndir af honum. Big Smile


Posted at 08:35 pm by heiddisr
Make a comment  

Sunday, January 28, 2007
Gyðinganafn

Kaldhæðni örlaganna varð þess valdandi að ég komst ekki með norður á Akureyri. Það kom upp kláðamaur í vinnunni minni og við ákváðum að krefjast þess að allir þjónustunotendur færu í kláðamaurameðferð sem og starfsfólk. Ég er nokkuð viss um að ég hafi ekki verið með þessa maura en vildi samt ekki taka áhættuna og smita þá sem yrðu með mér í rútu. Svo tekur þessi meðferð líka 24 klst og henni varð að vera lokið þegar ég ætla að mæta í vinnu á mánudagsmorgun. Það getur verið leiðinlegt að vera svona skynsamur.

Áður en kremmeðferðin byrjaði á föstudaginn fór ég með Stefáni á þorrablót hjá vinunni hans. Ég var svo yngst að það var ekki fyndið. Þetta var samt mjög gaman. Ég smakkaði allan súrmatinn (svona litla bita) og hákarl. Ég var ennþá svolítið stífluð af kvefinu mínu og fann því sem betur fer ekki allt bragðið af súrmatnum. En ég fann alveg nógu mikið bragð til að geta sagst hafa smakkað súrmat og fundist hann vondur.

En ég fer alveg að vera búin að ná því að vera í svona aðeins eldra fólks félagsskap. Í göngutúrnum um Hornstrandir í sumar var ég lang yngst sem og í hestaferðinni í haust. Þannig að þetta fer alveg að venjast.

Gaman að segja frá því að við vorum að horfa á fyrstu seríuna í sex and the city í gær. Í sjötta þættinum kom fram að Charlotte hafði sofið hjá gyðinga listamanni sem hél Shmuel. Okkur fannst þetta alveg einstaklega fyndið. Kötturinn okkar hét næstum því gyðinganafni....og hann sem er með Hitlerskegg....ekki alveg að gera sit. Kannski þess vegna sem mér fannst Smúel ekki passa honum. Undirmeðvitundin mín hefur vitað að þetta væri gyðinganafn!!!

ÁFRAM ÍSLAND


Posted at 01:12 pm by heiddisr
Make a comment  

Thursday, January 25, 2007
Dómara *bííííbbb*

Það að dómarar geti kostað okkur sigur er ófyrirgefanlegt. Ég er svo pirruð út í þessa hundlélegu dómara sem dæmdu leikin áðan að ég get varla hamið mig. Eins gott að ég er ein heima, annars væri ég búin að öskra og skammast í Stefáni Boga eins og ef hann væri annar þessara druslu dómara. ooohhh ég er svo fúl. Það hlítur að vera í einhverjum reglum að dómarar meigi ekki dæma ef þeir eru litblindir á rautt og blátt. Magnað hvað við vorum sendir útaf en ekki Pólverjarnir fyrir sömu brotin. Og skref og lína þar sem ekki var vottur af skrefum eða línum. Arg. Enda sást það nú alveg að Alfred var meira en lítið fúll út þegar leikurinn kláraðist. Hann var meira að segja farinn að rífast við leikmenn í pólska liðinu. Kannski ekki alveg það skynsamlegasta...

En svona fyrir utan þennan pirring. Það var rosa gaman að fylgjast með leiknum á móti Túnis í gær. Úr fjórum mörkum undir í sex yfir. Ekki amalegt það. Þetta er það skemmtilega við íslenska liðið í handbolta. Þeir koma manni sífellt á óvart. Tapa fyrir einhverjum sem manni finnst að þeir eigi að vinna og vinna svo þá sem maður er ekkert of bjartsýnn á að þeir vinni. Alveg frábært lið. Bara svoldið óheppnir stundum. Eins og í dag með dómara.... allir að skrá sig í "liðið"

Annars er ekkert skemmtilegt að gerast hjá mér. Er búin að vera heima í dag og í gær með kvef. Var svo stífluð og úthaldslaus. Er bara búin að vera að hangsa heima við sjónvarp og tölvu. Sprautandi nefúða í nebban minn og hnerrandi eins og mér sé borgað fyrir það. Gaman að þessu. En ferðinni er heitið norður um helgina. Verst að ég verð í rútu þegar leikurinn er á sunnudaginn. Eins gott að við finnum útvarpslýsingu á leiðinni.

Hittumst hress á Akureyri


Posted at 06:56 pm by heiddisr
Comments (1)  

Next Page