Núna ætla ég að gera eins og kærastinn minn sem blogga alltaf í vinnuni !! Það er nefninlega föstudagur og ég er hætt að vinna í huganum þó að klukkan sé ekki orðin fjögur. Ég hélt að ég myndi blogga mikið fyrr til að segja frá kisanum mínum en ég hef bara ekkert nennt því undanfarið. Það er nú svona allt og ekkert búið að vera að gerast hjá mér.
Fyrst ber auðvitað að nefna kisustrákinn Kúst sem kom til okkar fyrir viku síðan. Hann vældi og vældi í bílnum á leiðinni heim en hefur eiginlega ekkert vælt síðan. Var alveg viss um að ég myndi ekkert geta sofið fyrir væli fyrstu 2-3 næturnar en nei nei. Minn sefur bara sáttur á teppinu sínu (með mömmu lykt í) í stofunni en við í herberginu. Fyrstu nóttina var opin hurðin til að ég myndi nú örugglega heyra í honum. Allar nætur síðan hefur hurðin verið lokuð. Það er einfaldlega af því að honum finnst fátt skemmtilegra en að láta eins og skopparakringla í rúmminu mínu. Það er heldur ekkert gaman að vera í rúmminu nema einhver annar liggi þar undir sæng og svo stekkur hann á allt sem hreyfinst og allt sem hreyfist ekki !! Fyrstu dagana vildi hann heldur ekkert vera að knúsast en núna kemur hann oft og leggst uppvið mann eða í fangið á manni. Ferlegt krútt. Hann tók svo nafnið sitt mjög alvarlega fyrsta daginn og sópaði rykinu undan sófanum mínum. Ég ryksugaði daginn eftir. En allavega...hann virðist vera voða sáttur við lífið og mér finnst gaman að hafa hann :) p.s.er búin að setja myndir af honum á myndasíðuna sem ég mundi allt í einu eftir að ég ætti !!
En að öðru. Það var nóahittingur síðasta sunnudag. Voða gaman að hitta þetta fólk svona reglulega og blaðra saman og borða eitthvað djúsí. Svo kom Elín í heimsókn til mín á mánudaginn. Greinilegt að það er allt of langt síðan við höfum sést...Lárus bara farinn að tala og skríða og hef aldrei séð það gerast !! Lélegt af minns. Við fórum að borða á Vegamót. Voða var það gaman. Mér fannst ég vera svo mikil gella að fara svona tvær vinkonurnar að borða góðan mat á Vegamótum. Veit ekki af hverju mér fannst það svona merkilegt....örugglega fólk sem gerir þetta oft í mánuði....en ekki ég!
Er skottið á ketti sem heitir Kústur kústskaft ?? (afi minn að spá! Hæ afi !!
)
Púff ég er orðin þreytt í úlnliðunum. Hætt í bili. Verð bara að blogga oftar svo ég þurfi ekki að blogga svona mikið í einu 
Posted at 02:55 pm by heiddisr