Ég er að horfa á Britains next top model og ég get svo svarið það þetta er meiri vitleysa en americas next top model. Mér sýnist á öllu að bresku stelpurnar séu meira dramadrottningar en þær amerísku (ef það er hægt!). Þessi þáttur lítur allavega ekki út fyrir að vera jafn glam og sá ameríski, sem mér finnst vera svolíti synd. Ég horfi nefninlega á raunveruleikaþætti til þess að komast úr raunveruleikanum og í óraunverulegan raunveruleika...eða svoleiðis sko. Myndirnar ekki jafn flottar og ég sakna dómaranna í ameríkunni !!
Allavega, það er sko meira en nóg að gera í vinnunni. 6 af 12 starfsmönnum voru veik í síðustu viku. Þar af allir 6 sömu tvo dagana. Ekki alveg nógu gott. Ennþá svolítil veikindi í gangi, ekki alveg jafn mikil og í síðustu viku en þó nokkur. Nóg að gera hjá mér þar sem forstöðukonan er veik þessa vikuna og starfsdagur á föstudaginn. Óboy...
Bíllinn minn var í viðgerð í dag. Mér fannst mjög ósanngjarnt að hann væri farinn að hiksta þar sem hann er bara 2004 árgerð. En sem betur fer virðist það hafa virkað að skipta bara um einhver kerti og bensín síu og hann er orðinn mun mýkri og þægilegri að keyra. Hafði ekki tekið eftir því hvað hann var orðinn "harður" að keyra. Bíllinn minn hefur samt alltaf verið þannig að stefnuljósið slær ekki af þegar maður er búinn að beygja. Ég hélt að hann hefði bara komið svona en þá kemur í ljós að það er eitthvað brotið inni í stýrinu og það kostar svolítið að gera við hann. Þannig að pabbi ætlar að hringja í toyota og segja "halló, dóttir mín keypti bíl hjá ykkur fyrir 15 mánuðum síðan og hún hefur verið of löt til að láta athuga stefnuljósið sem var bilað þegar hún keypti bílinn". Gaman að fá að vita hvað þeir segja við þessu :þ En Stefán Bogi var að fá sér nýjan bíl. Rosa flottur skoda superb. Ætli hann verði ekki kallaður ráðherrabíllinn í daglegu tali !!
Kústur hefur það rosa gott hérna hjá okkur. Hann getur reyndar gert mig alveg vitlausa þegar hann er í því stuðinu. Reynir að naga tærnar á manni, leikur sér að höndunum á manni (klórar og glefsar), hleypur um allt hús, upp og yfir sófann og mannfólkið ef það er fyrir og þarf að skoða og helst naga allt sem hann finnur. En þess á milli er hann ferlega sætur, leikur sér með dótið sitt og kúrir hjá manni. Hann róast svo væntanlega (vonandi) með aldrinum :)
Ótrúlega fyndið hvað bloggmenningin hefur breyst á 2-3 árum. Þegar allir voru að byrja að blogga þá var kommentað hægri vinstri. Núna er þetta ekki lengur nýtt og skemmitlegt, allir komnir með blogg og alltaf einhver nýbúinn að blogga. Maður nennir einhvernvegin ekki að vera alltaf að kommenta. Samt vill maður sjálfur fá komment hjá hinum svo maður hafi smá hugmynd um hverjir eru að skoða síðuna manns. Mér finnst þetta fyndið en get samt ekki skammast undan kommentaleysi þar sem ég sjálf er ekkert dugleg að kommenta hjá öðrum :)
Ég og Stefán Bogi vorum rosalega hipp og kúl síðasta föstudag (fannst mér allavega). Við fórum út að borða á Thorvaldsen bar og fengum okkur svo eftirrétt á cafe parís. Þá átti kvöldið að vera búið og við vorum komin með vídjóspólu þegar vinkona hans Stefáns hringdi og spurði okkur hvort við vildum kíkja aðeins út. Þannig að við gerðum okkur sæt og kíktum aðeins á Salt, barinn á 1919 hótelinu. Sátum þar í tvo tíma og drukkum kokteila. Rosa flott :)
Hey við vorum að kaupa okkur ferð til Krítar í ágúst, vúhú. Er farin að hlakka til en nenni eiginlega ekki að hlakka til strax þar sem ferðin er ekki fyrr en eftir hálft ár ! Við förum síðustu vikuna í ágúst sem gerði ferðina 15 þúsund krónum ódýrari á mannin heldur en ef við förum tveimur vikum fyrr. Enginn smá munur! En við ætlum að vera á sama hóteli og ég var á fyrir fimm árum. OOhhh ég hlakka til að komast út í sólina :) vona svo að þetta verði sólríkt og skemmtilegt sumar. Allt er nú skátta en síðast sumar !
Vá held að ég sé búin að blogga nóg í bili. Until we meat again :)