Offf....stundum er vinnan mín svo erfið. Dagurinn í dag var erfiður. Hann byrjaði til dæmis ekkert sérstaklega vel. Var slegin 3x í andlitið. Hefði getað haldið höggunum í einu ef ég hefði beðiði um hjálp strax. En ég varð svo fúl að ég ákvað að gera það sem ég var að gera ein, og fékk þá bara tvö högg í viðbót á nefið. Eins gott að gleraugun eru með svona dempara...annars væru þau orðin svo víð á mér að ég gæti örugglega ekki haft þau á mér.
Annars held ég að ég þurfi að fara að leita mér að þolinmæðinni minni aftur. Þegar ég byrjaði hérna þá hafði ég að mér fannst endalausa þolinmæði fyrir hinum ýmsu sérþörfum þjónustunotenda hérna inni. En hún hefur eitthvað minnkað.Ég gat talað sumt fólk hérna endalaust til ef það var æst eða vildi ekki gera eins og það átti að gera. Núna langar mig (ath langar, geri ekki endilega) helst til að segja æstu fólki að þegja og nenni ekki að díla við þá sem gera ekki eins og ég segi. Veit ekki hvort að þetta sé það sem kallast kulnun í starfi eða hvað. Gerðist reyndar líka í Nóatúni og þessi fílingur leið hjá. Vona að það geri það núna líka og það fljótlega. Er samt farin að telja niður í páskafrí !!! 13 dagar...