Heiðdís, komin í Breiðholt af öllum stöðum!!
   

<< November 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:


rss feed

Sunday, January 21, 2007
Nýtt nafn

Ég fór og heimsótti kisuna mína áðan og komst að því að mér finnst Smúel ekki passa við hann. Er búin að finna nýtt nafn á hann sem mér finnst passa honum betur. Kisinn minn er með mjög löng veiðihár og þess vegna á hann að heita Kústur. Ætla ekki að breyta því aftur.

 

Þetta er Kústur...léleg mynd en mynd engu að síður. Fæ hann eftir tæpar tvær vikur. Er mjög spennt.

Meira seinna


Posted at 11:42 pm by heiddisr
Make a comment  

Tuesday, January 16, 2007
Snjór og helgin

Merkilegt hvað fólk getur kvartað undan snjónum. Ég hef svo lúmskt gaman af því að hafa hann. Jú jú það er kallt á morgnanna og það þarf að skafa. En mér er alveg sama. Ég hef gaman af snjónum. Reyndar á að fara að blása núna í vikunni og þá verður náttúrulega viðbjóðslega kallt. En ég hef einhvernvegin meira gaman af svona extreme veðri, almennilegum kulda og almennilegum hita, frekar en þessu miðjumoði sem hefur verið í gangi að undanförnu. Þannig að ég er bara sátt við snjóinn, svo lengi sem hann fer ekki inná mig eða kostar mig árekstur.

Annars er ekkert merkilegt að frétta af mér. Ég tala svo mikið um þessa blessuðu kisu sem ég er að fá að bráðum fæ ég örugglega leið á kisugreyinu. Fólkið í kringum mig hlýtur að vera búið að fá nóg af þessu tali mínu. Ég fór reyndar og heimsótti hann síðasta föstudag. Hann vildi ekkert tala við mig. Var svo upptekinn af því að vera stór og kunna að leika sér. Voða sætur. Ég er strax komin með samviskubit yfir því að taka hann frá mömmu sinni. Þar sem hann er núna eru þrjár aðrar kisur, tvö börn og tveir fullorðnir. Það sem ég á heima verður einn köttur, aleinn heima yfir daginn og stundum á kvöldin. Eins gott að maður kaupi eitthvað skemmtilegt dót og dekri svolítið við hann greyið svo hann deyi ekki úr leiðindum! Ég verð samt örugglega orðin sérfræðingur í kisum þegar ég loksins fæ hann. Er búin að vera að skoða spjallþræði um kisur og svona þannig að ég viti örugglega hvað ég á að gera ef eitthvað kemur uppá eða ef hann tekur upp á einhverri vitleysu !

En nóg um Smúel minn. Um helgina ákvað ég að kíkja á útsölu í Intersport þar sem mig vantar íþróttaskó. Mínir eru of litlir á mig og ég er með rosalegar blöðrur á litlu tánum út af þessu. Ég fann þessa líka fínu skó á fínu verði. Verst að ég fann bara annan skóinn og kassann utanaf honum. Hinn skórinn var bara nowhere to be found. Og auðvitað eini skórinn í mínu númeri. Ég fór bæði á sunnudaginn og í gær og þessi skódrusla er bara ekkert að finnast :( men...   Ég tók svo uppá því að fara á handboltaleik á sunnudaginn.  Ísland-Tékkland. Gvaðalega var það gaman. Sérstaklega í ljósi þess að við unnum leikinn og vorum allan tímann yfir. Og minns í sjónvarpinu að syngja þjóðsönginn. Góður

Ok er aftur að svindla með því að blogga í vinnunni. Hætt núna.


Posted at 09:03 am by heiddisr
Make a comment  

Wednesday, January 10, 2007
Smúel

Ég má fá kisu ! Ég má fá kisu !

Jammses, það er búið að biðja húseigandann um leyfi og honum fannst varla nokkuð sjálfsagðra. Hækkaði reyndar leiguna okkar en það tengdist ekkert kattarhaldinu. Þannig að um mánaðarmótin kemur til okkar lítill snúlli sem við erum að hugsa um að kalla Smúel. Mér finnst þetta svo fyndið nafn. Hugrún var einhvertíma að skrifa nafnið Samúel en gleymdi að skrifa a-ið og úr varð Smúel. Við höfum hlegið að þessu nokkrum sinnum og þegar Heiða minntist á þetta á mánudaginn þá gat ég varla hamið mig mér fannst það svo sniðugt. Stefán Bogi vildi reyndar nefna hann Þröskuld af því að ég hélt í einhverjar 10 sekúndur í hittífyrra að það væri alvöru nafn. En mér finnst það ekkert sniðugt. Það komu samt upp ýmsar hugmyndir af nöfnum hjá okkur. Til dæmis Cat Stevens, Seifur, Bakkus, Búi, Rómeó, Óliver, Rollex og margt fleira. Á tímabili héldum við að við gætum ekkert fengið okkur kisu af því að við vorum ekki sammála um nafnið :) en þetta reddast.

Þannig að ég er rosa spennt og vildi að febrúar væri kominn. En það er nóg að gera þangað til svo ég þarf ekkert að hafa áhyggjur af því að mér leiðist. Stúdentamótið er til dæmis 26-28.janúar á Akureyri. Það verður rosa gaman. Hlakka til. Vona að sem flestir komi og það verði skemmtileg stemning. Við erum búin að leigja langferðabíl....ekki rútu....langferðabíl í ferðina. Allir að koma austur !!! :)

Allavega, er að vinna, þá á víst ekki að vera að blogga !!! úps...


Posted at 01:13 pm by heiddisr
Comments (8)  

Saturday, January 06, 2007
2007 er byrjað :)

It is official. Mig langar í kisu. Fór í heimsókn til móðursystur minnar í vikunni. Hún er með tvo mánaðargamla kettlinga hjá sér. Þeir eru svo sætir. Hún og systur mínar ákváðu að taka annan frá fyrir mig. Var nú ekki alveg viss um þetta en því meira sem ég hugsa um þetta þeim mun meira langar mig í þennan litla kisustrák. Núna er bara að bíða eftir að Stefán Bogi komi heim (er fyrir austan...eða norðan eða eitthvað. er allavega að framsóknast einhverstaðar á landinu. Og af hverju veit ég ekki hvar hann er??? Af því að síminn er batteríislaus og hann ekki með hleðslutæki). Ég ætla sem sagt að láta hann spyrja fólkið sem við leigjum hjá hvort við meigum hafa kisu. Reyndar alveg týpískt að þau vilji ekki kött í húsið bara af því að mig er farið að langa svo í hann. Reyni þess vegna að vera ekki of vongóð. En mig langar samt í hann ...

Eníhús. Áramótin mín voru fín. Svolítið öðruvísi en venjulega en samt mjög skemmtileg. Við Stefán fórum til Keflavíkur þar sem fjölskyldan mín hittist. Við vorum þar í mat, spiluðum tölvuleik og horfðum á skaupið. Um leið og skaupið var búið brunuðum við í Hafnarfjörðinn þar sem fjölskyldan hans Stefáns hittist. Það var líka voða gaman þar. Við spiluðum til fjögur!! Það var samt voðalega skrítið að fara frá famelíunni minni rétt fyrir miðnætti. Þetta var svona "langar alveg að hitta hitt fólkið en langar samt ekki að fara frá mínu". Spes, en það er svona að eiga allt í einu tvær famelíur. Það er samt voða gaman að eiga svona tvær famelíur :) Það var samt einstaklega gaman að keyra Reykjanesbrautina. Við sáum svo mikið af flugeldum, þetta var ekkert smá flott. Mæli með bíltúr rétt fyrir miðnætti á gamlárs.

Vikan í vinnunni er búin að vera svakaleg. Það eru næstum því allir búnir að vera veikir og með í maganum. Og þetta eru ekkert sólarhrings kveisur sem fólk er að fá. Þetta tekur þrjá til sjö daga. Ótrúlega pirrandi. Ekki það að ég sé eitthvað pirruð út í fólkið, bara svona almennt út í veikindi. Við erum reyndar með alveg magnaðan vinnustað. Við erum 11 sem vinnum þarna og þegar það vantar fimm....þá getur lífið verið svolítið erfitt.  

Until next time .... be safe


Posted at 05:00 pm by heiddisr
Make a comment  

Sunday, December 31, 2006
2006 næstum alveg búið

Jæja, síðasti dagurinn á árinu er mættur á svæðið. Ég ætlaði að vakna um ellefu. Það mistókst.

Jólin mín hafa að sjálfsögðu verið rosa fín að mestu leiti. Byrjaði náttúrulega á afmælinu mínu sem mér finnst alltaf rosa skemmtilegt. Þegar maður á afmæli þá má maður gera allt og ef einhver horfir grimmilega eða hneikslunarlega á mann eftir að maður hefur gert eitthvað þá segir maður bara " ég má þetta alveg, ég á afmæli ". Þetta var sem sagt bara góður dagur þó að ég hafi nú ekki gert neitt merkilegt.

Á Þorláksmessu fórum við í skötu/saltfisks hádegismat til tengdó. Ég smakkaði skötuna í annað sinn og í þetta skiptið var hún æt (var það ekki í fyrra þegar ég smakkaði). Ég ætlaði svo að fara heim til að framkvæma jólahreingerningu en það tókst nú ekki fyrr en af einum og hálfum fótboltaleik loknum. Þá var minns orðinn heldur óþreyjufullur. Enda ekkert gaman að eyða hálfu þorláksmessukvöldinu í þrif. En þá settum við líka upp jólatréð sem ég keypti og það var voða gaman. Fengum okkur svo smá gönguferð niður laugarveginn með Friðriki nokkrum og fórum svo í Friðrikskappellu og fengum jólastemningu beint í æð.

Jólin voru yndisleg eins og alltaf, góður matur, góð fjölskylda, skemmtilegir pakkar. Eftir ísinn hjá minni famelíu fór ég yfir í Hafnarfjörðinn og fann kærastann minn og fjölskyldu hans afvelta í sófanum eftir rjúpuát. Komst að því hvað það er gaman að eiga tengdafjölskyldu þar sem þarna biðu mín nokkrir pakkar. Ekki amalegt. Það var samt ferlega krúttlegt að komst að því hvað mæður hugsa eins þar sem mæður okkar beggja gáfu okkur rúmmföt þannig að núna eigum við tvenn samstæð rúmmföt. Vey.

Á jóladag var svo jólaboð hjá famelíunni minni. Við erum orðin svolítið mörg....vorum 70 sagði einhver mér. Ég reyndi að vera svona ættfræðingur að segja Stefáni frá hver væri sonur hvers og kærasti hins og ekki skyldur mér heldur tengdir inn í og allur þessi pakki. Er ekki frá því að með einstökum frásagnarstíl mínum og einstökum gáfum hans Stefáns hafi hann nú bara náð meirihlutanum af þessari fjölskyldu minni. En það hefur sjálfsagt aldrei verið hægt að segja að Stefán Bogi hafi verið feiminn drengur. Þetta hefur faðir minn fundið á sér og spurði Stefán hvort hann væri ekki til í að leika sveinka með frænda mínum. Þetta vakti svona líka mikla lukku. Þeir náðu svona líka vel saman í rauða búningnum að fólk var að hrósa mér fyrir það sem eftir var kvölds. Einn frændi minn sagði að það tæki nýtt fólk tíu ár að komast inn í fjölskylduna en hann var tilbúinn að stytta það niður í fimm vegna frækilegrar frammistöðu í sveinkaleik. Gaman að því.

Eftir jólaboðið héldum við Stefán svo fullorðins partý. Útvöldum var boðið í osta, léttvín og spil. Það var rosa gaman. Endaði samt ekkert vel. Minns var veikur á annan í jólum með magakveisu, upp og niðurgang. Ekki skemmtilegt. Leiðinlegt að vera lasinn. Sem betur fer er langt síðan ég hef fengið ælupest og vona að það sé langt í þá næstu. En ég vil alltaf líta á björtu hliðarnar og hef því gaman af því að maginn minn minnkaði við uppköstin. Þá get ég ekki borðað eins mikið af kræsingunum sem eftir eru og þyngist því vonandi minni yfir jólin :þ haha

Fór á Happy feet myndina í gær. Undarleg mynd. Fullt af "duldum" og ekki svo duldum áróðri í henni. Undarleg mynd.

Nei vá, held að ég sé búin að blaðra nóg í bili. Gleðilegt nýtt ár allir saman. Takk fyrir góðar stundir á því gamla :O)


Posted at 01:40 pm by heiddisr
Make a comment  

Wednesday, December 20, 2006
Tuttuguogtveirtólf!!!

Núna þessa vikuna hefur verið skemmtileg vika mjólkurlega séð. Núna er nefninlega þessi skemmtilegi tími þar sem mjólk og aðrar mjólkurvörur eru að renna út á afmælisdaginn minn. Ég er svo einföld að mér finnst mjög gaman að sjá afmælisdaginn minn á mjólkurfernum sem og annars staðar. Ég hrópa til dæmis alltaf upp ef ég sé að klukkan er 22.12. Hugrún var mjög pirruð á þessu á tímabili af því það virtist sem auglýsingatími skjás eins væri alltaf á þessum tíma þannig að ég leit alltaf á klukkuna á þessum tíma og gargaði upp "tuttuguogtveirtólf !! ".

Gaman að þessu


Posted at 11:40 pm by heiddisr
Comments (4)  

Sunday, December 17, 2006
Komin heim

Þá er maður komin heim from London. Fín ferð, mikið verslað, aðallega jólagjafir og jólaföt handa mér. Föstudagurinn var aðal dagurinn. Við systurnar héldum út um morguninn og komum ekki heim aftur fyrr en að sex tímum liðnum. Rosalega er mikið af fólki í London. Og ég held að það hafi allir verið í miðbænum. Við fórum svo á söngleikinn Spamalot á föstudaginn. Fyrir þá sem eru ekki inni í söngleikja heiminum þá er það söngleikur byggður á Monthy Python myndinni The holy grail. Mikið einstaklega var það gaman. Ég hló svo mikið. Tim Curry lék King Arthur og hann var svo flottur. Ég hef séð Hollywood stjörnu :) ví. Það var nú næstum því best þegar flottu leikararnir tveir frá upprunalegu sýningunni á Broadway gátu ekki hamið sig og þurftu að stoppa til að hlæja. Rosalega var það skondið. En þetta var æðislegur söngleikur. Mæli hiklaust með honum.

Við fórum svo á laugardaginn þegar við vorum búnar að versla á leikhús safn. Það var nú svolítið magnað að skoða það. Leikhúsin á West End eru öll meira en 70 ára gömul. Flest frá 18 hundruð og eitthvað. Hafa verið endurbætt og löguð en eru upprunalega svona gömul. Núna hef ég farið í fjögur bresk leikhús og hef alveg tekið eftir því hvað þau eru gömul og flott. Það var voða gaman að skoða þetta safn. Lærði heilmikið á því. Hélt samt á tímabili að það væri endalaust. Fórum eitthvað niður þar sem safnið hélt áfram og villtums næstum því þar. Skil ekki hvernig þessi bresku hús virka. Oft líta þau ekki út fyrir að vera stór en eru svo endalaust stór upp og niður og út á hlið.

Bara svona í endann þá þarf ég að segja frá því hvað pabbi minn er klár. Hann og mamma komu að sækja okkur systurnar á flugvöllinn. Pabbi vildi endilega fara á stærri bílnum þar sem við værum með svo mikinn farangur. Hann fór svo út og tók eitthvað drasl úr aftursætinu. Svo þegar við ætluðum að setja töskurnar okkar í skottiuð þá blöstu við fyrir framan okkur þessir fínu pokar fullir af flöskum og blöðum á leið í sorpu !! Úps :)


Posted at 10:07 pm by heiddisr
Make a comment  

Thursday, December 14, 2006
London baby

Ég er í London. Búin að labba fullt og eiginlegur verslunarleiðangur byrjar á morgun. Þar sem peningum verður (kannski því miður) eytt. Jibbsídú

Hugrúnin mín er alltaf jafn sæt. Og hún skilur mig og ruglið mitt á annan hátt en allir aðrir.... I love her :)

Meira síðar

 


Posted at 08:55 pm by heiddisr
Make a comment  

Sunday, December 10, 2006
Miss Piggy

Það var verið að tilkynna mér að bloggið mitt segði ennþá að heimurinn væri vondur! Mér finnst reyndar skondið að fá lélegur bloggari komment frá fólki sem er lélegra en ég að blogga. En well, heimurinn hefur bara skánað í síðustu dögum. Jólavinaleikurinn hafði góð áhrif á vinnumóralinn og eitt gott jólahlaðborð líka. Alltaf gott og gaman að skemmta sér saman. Tryggingarfélög og sektargreiðslur eru samt ennþá leiðinlegar og í sumum tilfellum ósanngjörn.

EENNNnnnn lífið er aldeilis endemis ágætt. Er að fara til London á fimmtudaginn þar sem ég ætla að eyða fullt af peningum, peningum sem ég á og peningum sem ég á ekki !! Ekki skynsamlegt og ætla að reyna að forðast það, en það er rosa mikið sem ætla að kaupa úti. Jólagjafir, jólaföt of snyrtivörur. Og svo ætla ég að fara á söngleikinn Spamalot. Á tónlistina úr því og ég veit að þetta verður snilldin ein. Alltaf gaman að fá auka frí í vinnunni. Þó að launalaust leyfi kosti nú sitt. Shitt hvað þetta er að verða leiðinleg færsla.

Fór á frostrósartónleikana á þriðjudaginn. Þeir voru mikið upp og niður. Sum lögin æðisleg. Önnur ekki. Á heildina litið stóðu allir þeir sem komu fram sig vel. Þeir sem voru ekki að standa sig voru skipuleggjendurnir. Aðeins of metnaðarfullt verkefni fyrir þá. Hefði verið allt í lagi ef ég hefði keypt miða fyrir ca 2500 krónur. En fyrir 5900 krónur var þetta ekki alveg þess virði. Nema Sissel, hún er engill og stóð sig lang lang best !

Hef ekkert sérstakt til að gera hana betri. Hef nú ekki verið að gera neitt merkilegt af mér undanfarið. Hlakka bara til að heimsækja systur mína í London. Hef vonandi eitthvað meira spennandi að segja þegar ég kem heim.

until then, njótiði jólaundirbúningsins !


Posted at 09:58 pm by heiddisr
Comments (2)  

Tuesday, November 28, 2006
Heimurinn er ennþá vondur!

Heimurinn er ennþá vondur. Tryggingafélög eru leiðinleg og sektargreiðslur ósanngjarnar. Það er einhver pirringur í fólkinu í vinnunni þannig að allt verður svo erfitt þó það þurfi ekki að vera það. Ekki það við erum með leynivinaleik sem er mjög skemmtilegur, fyrir utan það að einn er veikur þannig að við þurftum að geyma hann aðeins og fiffa svo til þegar í ljós kom að hann vildi bara draga sig úr leiknum. Vona að vikan eigi eftir að skána og að þessi dagur hafi verið erfiðastur og leiðinlegastur. Erfiðir dagar hafa samt verið að koma mikið undanfarið, allavega meira en venjulega. Síðasti fimmtudagur var einmitt svona erfiður líka. En ég er að vona að dagurinn eigi eftir að skána aðeins. Á nefninlega pantaðan nuddtíma núna á eftir. Vona að nuddgella geti nuddað allan pirring úr mér þannig að það verði pláss fyrir jólaskapið mitt (nóg til af því, vantar bara pláss fyrir það). Ekki það ég kvíði þessum nuddtíma svolítið. Mér var svo illt í mjóbakinu eftir síðasta tíma að það var hreinlega ekki fyndið. Núna er ég líka með nuddsár eftir að hafa legið með þjónustunotanda í gólfinu í 45 mínútur í vinnunni í dag. Ekki gaman. En allavega. Vona að jólaleynivinaleikurinn í vinnunni lyfti aðeins móralnum upp og allt verði í lukkunnar velstandi á föstudaginn þegar við förum á jólahlaðborð. Svo er ekki spurning um að maður komist í jólaskap næsta þriðjudag þegar ég ætla að fara með mínum heittelskaða á frostrósartónleikana í höllinni. Eins gott að ég fái gæsahúð oftar en einu sinni og oftar en sjö sinnum.

Treysti á það að heimurinn skáni fram að næsta bloggi !!


Posted at 07:34 pm by heiddisr
Comments (2)  

Previous Page Next Page