Entry: Gyðinganafn Sunday, January 28, 2007



Kaldhæðni örlaganna varð þess valdandi að ég komst ekki með norður á Akureyri. Það kom upp kláðamaur í vinnunni minni og við ákváðum að krefjast þess að allir þjónustunotendur færu í kláðamaurameðferð sem og starfsfólk. Ég er nokkuð viss um að ég hafi ekki verið með þessa maura en vildi samt ekki taka áhættuna og smita þá sem yrðu með mér í rútu. Svo tekur þessi meðferð líka 24 klst og henni varð að vera lokið þegar ég ætla að mæta í vinnu á mánudagsmorgun. Það getur verið leiðinlegt að vera svona skynsamur.

Áður en kremmeðferðin byrjaði á föstudaginn fór ég með Stefáni á þorrablót hjá vinunni hans. Ég var svo yngst að það var ekki fyndið. Þetta var samt mjög gaman. Ég smakkaði allan súrmatinn (svona litla bita) og hákarl. Ég var ennþá svolítið stífluð af kvefinu mínu og fann því sem betur fer ekki allt bragðið af súrmatnum. En ég fann alveg nógu mikið bragð til að geta sagst hafa smakkað súrmat og fundist hann vondur.

En ég fer alveg að vera búin að ná því að vera í svona aðeins eldra fólks félagsskap. Í göngutúrnum um Hornstrandir í sumar var ég lang yngst sem og í hestaferðinni í haust. Þannig að þetta fer alveg að venjast.

Gaman að segja frá því að við vorum að horfa á fyrstu seríuna í sex and the city í gær. Í sjötta þættinum kom fram að Charlotte hafði sofið hjá gyðinga listamanni sem hél Shmuel. Okkur fannst þetta alveg einstaklega fyndið. Kötturinn okkar hét næstum því gyðinganafni....og hann sem er með Hitlerskegg....ekki alveg að gera sit. Kannski þess vegna sem mér fannst Smúel ekki passa honum. Undirmeðvitundin mín hefur vitað að þetta væri gyðinganafn!!!

ÁFRAM ÍSLAND

   0 comments

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments