|
Ég er svo þreyttur! Ég fer í vinnuna á morgun klukkan átta og ég verð búin að vinna klukkan tíu. Ég á inni frí sem ég ætla að taka á morgun. Og hvað ég þarf á því að halda. Er svo þreytt eftir vikuna að það er ekki fyndið. Þetta kláðamauravesen í vinnunni er búið að taka sinn toll. Múgæsingur og paranoia á hæsta stigi. En það er búið núna...finally. En eftir stend ég dauðþreytt. Var fyrir löngu búin að plana rólega helgi þar sem Kústur kemur á morgun (jey) en það er að verða eitthvað lítill tími eftir fyrir hann greyið. Helgin mín (sem átti að vera róleg) er ca.svona: Ná í kisu í hádeginu á föstudegi. Þorrablót hjá tengdófjölskyldu milli sex og sjö (og frameftir Ætla ekki að tala um leikinn við dani á þriðjudaginn. Þetta var eins sárt og það hefði getað verið sætt. Strákarnir "okkar" eru samt bestir og mér finnst þeir æði. Líka Logi þó hann hafi kastað boltanum til dana og Alexander þó hann hafi skotið í stöngina. Þeir eru bestir. Blogga næst þegar Kústur er kominn og mér finnst hann svo sætur að ég verð að segja frá því og helst sýna myndir af honum. |
| Leave a Comment: |