Entry: Lasna bloggið Wednesday, March 07, 2007



Ég sit heima hjá mér í sófanum mínum...lasin. Ég er með svo ógeðslega hálsbólgu að það er hreinlega bara viðbjóður. Ágætis lýsing sem ég heyrði í vikunni var að þetta væri svona eins og að vera með rakvélablöð í hálsinum. Get alveg trúað að þetta sé eitthvað svipað. Í gær var ég svo með beinverki og hausverk líka. Var nú samt í vinnunni en beið eiginlega bara eftir hitanum. Hann kom svo á milli tvö og þrjú. Þá fór ég heim. Líður reyndar ágætlega núna (fyrir utan hálsbólguna). Er ekki með hita en er voða slöpp og aumingjaleg. Vona að þetta minnki fyrir helgina, ég er nefninlega búin að borga fyrir árshátíð sem verður á laugardaginn!! Kisla litla finns held ég ekkert leiðinlegt að hafa mig heima, hann kúrir allavega nálægt mér þegar hann getur, hann getur verið svo mikill snúður.

Ég var annars að spá hvort ég ætti að fara að skipta um blog. Komast í moggabloggs klíkuna til að geta fengið mynd af mér á síður hjá öðrum og svoleiðis töffaraskapur. Mér finnst það bara eitthvað svo leiðinlegt. Er búin að vera með þessa síðu síðan jah, 2003 eða 2004. Mér finnst það bara hellingur miðað við skilnaðartíðni fólks og bloggsíðna nú á dögum. Reyndi í veikindum mínum í dag að flikka aðeins uppá þessa síðu. Aðeins að breyta útlitinu og uppfæra blogghópinn þar sem ég hef verið mjög löt við það síðasta árið. Sjáum til hvernig ég nenni þessu. Hvort ég þurfi eitthvað nýrra en þetta eða hvað. Kannski lúðast ég bara eins og sumir sem fá sér moggablogg til að fá mynd af sér á aðrar síður en eru bara að benda á hinar bloggsíðurnar sínar Tongue  En hrós dagsins fær Friðrik Jensen fyrir að setja inn linka fyrir okkur hin sem erum ekki með moggablogg. Þeir sem gera það ekki eru svolitlir lúðar !!! (hhmmm, ætli maður fái comment fyrir að kalla fólk lúða ??)

 

   1 comments

Eva
March 10, 2007   02:00 PM PST
 
Flott lúkk ;)
Annars er ég nú líka búin að pæla í moggablogginu en ég hef einhvernveginn ekki nennt ennþá að byrja á því :Þ

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments